2.3.2007 | 21:08
Svona eru bestu fréttirnar
Horrengla hræðist svín. Þetta er náttúrlega bara dásamlegt! Til hvers þarf maður að vita hvað forseti Norður-Kóreu heitir þegar daglega berast jafn innantómar og dásamlegar fréttir og þessi? Fréttir sem koma manni í gott skap en gera mann ekki þunglyndan og niðurdreginn og handvissan um að heimurinn sé á heljarþröm...
Já, þetta leiddi meira að segja hugann frá sígarettufíkninni eitt augnablik en núna er ég á fjórða degi reykleysis og geng annað slagið í gegnum ógeðslega sígarettufíknarkrampa. Ekki stuð. Onei.
Grísir skelfdu Viktoríu Beckham | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Til lukku með reykleysið. Það er fátt eins púkó og að reykja. Loksins tókst mér að hætta, lengur en í fjóra klukkutíma.
Vaff, 5.3.2007 kl. 10:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.